Bæjarráð Vestmannaeyja mótmælir því harðlega að Herjólfur teljist til almenningssamgangna og vill að hann sé fremur flokkaður undir þjóðveg. Farþegum með Herjólfi hefur farið fækkandi og þá meðal annars vegna þeirra bilana sem markað hafa rekstur ferjunnar síðustu mánuði og þar með fjárhagslega stöðu rekstrarfélags Herjólfs.Þetta kemur fram í fundargerð síðasta fundar bæjarráðs en gestur fundarins var Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. sem sér um rekstur ferjunnar.
Mótmæla því harðlega að Herjólfur teljist til almenningssamgangna