Moss, veitingastaðurinn á The Retreat við Bláa lónið, heldur Michelin-stjörnu fjórða árið í röð.
Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að Moss sé eini hótel veitingastaðurinn á Íslandi með Michelin-stjörnu. Hann hafi frá árinu 2020 verið undir stjórn Agga Sverrissonar yfirmatreiðslumeistara.
„Að halda Michelin-stjörnunni fjórða árið í röð skiptir okkur gríðarlega miklu máli. Þetta er viðurkenning fyrir allt teymið á Moss og alla þá sem koma að upplifun gesta á The Retreat,“ er haft eftir Agga, sem er fæddur og uppalinn í Reykjavík en hann byggði upp feril sinn í London þar sem hann fór fyrir Texture Restaurant & Champagne Bar.
Texture hlaut Michelin-stjörnu árið 2010 og hélt henni í tíu ár.
Stöðugar gæðakröfur
Á Moss hefur Aggi unnið áfram með þá sýn sem hefur einkennt feril hans: einfaldleika, árstíðarbundin hráefni, nákvæm vinnubrögð og skapandi nálgun við matargerð.
Matseðlar Moss taka reglulegum breytingum og þar mætast íslensk hráefni, asísk áhrif og næm tilfinning fyrir náttúru landsins.
Michelin-stjörnur eru veittar til eins árs í senn og veitingastaðir þurfa því stöðugt að standast strangar gæðakröfur Michelin Guide.
Veitingastaðirnir Óx og Dill héldu einnig Michelin-stjörnum sínum.
