Verkalýðsleiðtoginn Sólveig Anna Jónsdóttir skýtur föstum skotum á þá sem vilja hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið og bendir á að enn sé í gildi viðskiptasamningur við Ísrael. „Vitið þið hver er helsti viðskiptaaðili Ísrael? Það er Evrópusambandið,“ segir Sólveig Anna í beinskeyttri færslu á Facebook. Sólveig Anna er einn stofnenda Áfram Ísland samtakanna og hefur stigið skýrt fram með sína afstöðu. Nýverið svaraði hún þeim sem hafa sett spurningamerki við veru hennar í samtökum með fólki sem aðhyllist önnur pólitísk sjónarmið öllu jafna.
Mörður svarar Sólveigu Önnu sem skýtur föstum skotum: „Ef að þið vitið að þetta ógeð er í pakkanum“