Bandaríski milljónamæringurinn T. Cullen Davis, sem var á sínum tíma sakaður um að hafa myrt 12 ára stjúpdóttur sína og elskhuga eiginkonu sinnar, er látinn, 93 ára að aldri. Davis var sýknaður af morðákærunni í einu umtalaðasta sakamáli Texas á áttunda áratug síðustu aldar.Davis, sem auðgaðist í olíuiðnaðinum, lést á heimili sínu í Colleyville í Texas síðastliðinn föstudag, að því er bandaríski miðillinn People greinir frá.
Morðin sem skóku Texas: Umdeildur milljónamæringur látinn 93 ára