Móðir körfuknattleiksmannsins Kinu Rochford, sem var myrtur í New York á föstudag, krefst réttlætis. Rochford lék um tíma með Þór í Þorlákshöfn.Rochford, sem var 35 ára gamall, var skotinn í höfuðið eftir að hafa rifist við morðingja sinn í Harlem hverfinu í New York á föstudagskvöld. Morðinginn er ófundinn.„Ég þarf að finna þann sem gerði þetta við barnið mitt,“ sagði Eden Rochford, móðir Kinu, á minningarathöfn á Banneker körfuboltavellinum í Brooklyn á þriðjudag.
Móðir hins myrta Kinu Rochford krefst réttlætis fyrir son sinn – Lék með Þór í Þorlákshöfn