Áhersla á að styrkja samstarf Indlands og Norðurlandanna í þeim síbreytilega heimi sem við lifum í var áberandi á blaðamannafundi sem forsætisráðherrarnir héldu í Ósló í dag. Hann var haldinn eftir leiðtogafund ráðherranna í morgun. Narendra Modi forsætisráðherra Indlands notaði þar orð sem hefur svipaða merkingu á hindú og íslensku.
Modi nefndi meðal annars að tengslin þarna á milli hefðu aukist undanfarin ár. Til að mynda hefðu fjárfestingar Norðurlandanna á Indlandi aukist um 200% og tvíhliða viðskipti hefðu fjórfaldast. Þá hefðu Indland og EFTA-ríkin gert fríverslunar- og efnahagssamning í október í fyrra og Indland gert svo fríverslunarsamning við Evrópusambandið fyrr á þessu ári.
Modi nefndi einnig að samstarf Indlands og Norðurlandanna hefði í seinni tíð snúið meira að grænum lausnum. „Með því að sameina þekkingu Íslands á jarðhita og sjávarútvegi, Noregs á sjálfbærri nýtingu hafsins og allra norrænna ríkja á líffræði hafsins getum við tryggt betri framtíð fyrir allan heiminn. Og með þessu samstarfi sameinum við framleiðsluþekkingu Svíþjóðar, tækniþekkingu Finnlands og netöryggi Danmerkur við getu Indlands til að þróa traustar lausnir fyrir allan heiminn.“ Modi boðaði einnig aukið samstarf í rannsóknum á norðurslóðum.
„Í ræðu minni á hindí í dag notaði ég orðið „sambandh“ oft. Reyndar þýðir orðið samband á mörgum norrænum tungumálum tenging, samband eða tryggðarbönd. Á hindí þýðir orðið „sambandh“ einnig það sama. Og þetta eru ekki bara líkindi í orðum. Þetta sýnir hversu nálægar skoðanir okkar og hugsanir eru. Við skulum því styrkja sambandið á öllum sviðum og auka samstarfið með frumkvöðlastarf og verðmætasköpun að leiðarljósi,“ sagði Modi. Sjá má klippuna af þessum bút hér að ofan.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vitnaði í tvíhliða fund sem hún hélt með Modi í morgun. Hann hefði verið spennandi. Þjóðirnar geti sýnt að margt tengi þær saman þó að þær séu bæði ólíkar og langt frá hvor annarri. Þá séu Íslendingar ánægðir með að deila jarðhitaþekkingu sinni enda fái þeir ýmislegt í staðinn.
Svo kom hún að sambandinu. „Ég verð bara að taka fram að ég elska þetta orð, samband. Ég ætla ekki að fara djúpt í önnur Norðurlandamál hér en þetta er hreint íslenskt orð, þið verðið að heyra þetta. Fólk á eftir að tileinka sér þetta tungutak því þetta er það sem fólk þarf. Það þarf meira samband í dag.“
TV2 í Noregi spurði Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs að því eftir blaðamannafundinn hvort staða Indlands í mannréttindamálum hefði verið rædd. Indland hefur lækkað á þeim lista og er nú í 150. sæti af 180 þjóðum. Støre sagði að í sumum málum væru skoðanir þjóðanna ólíkar en það kæmi ekki í veg fyrir samtalið. Indland sé lýðræðisríki og haldi sínar kosningar eins og vera ber.