„Við eignuðumst dóttur okkar, Sólveigu Huldu Egilsdóttur, þann 15. maí á Akureyri. Hún fór yfir í sumarlandið til ömmu sinnar daginn eftir, þann 16. maí, á vökudeildinni í Reykjavík,“segir Kolbrún María Garðarsdóttir, 27 ára nemi í félagsráðgjöf og íshokkíleikari, sem missti móður sína skyndilega þann 22. febrúar síðastliðinn. Kolbrún María var þá gengin 27 vikur með dóttur sína, sem fékk nafn ömmu sinnar heitinnar, Sólveigar Huldu Valgeirsdóttir. Sólveig Hulda starfaði sem deildarstjóri á lyflækningadeild á sjúkrahúsinu á Akureyri.
Missti dóttur sína þremur mánuðum eftir að móðir hennar lést: „Ég man eftir að hafa heyrt aftur og aftur að það væri ekki púls“