Minnti á samstöðu í skugga „stórra persónuleika“
Forsætisráðherra minnti á að stéttarfélögin stæðu sterkari saman en sundruð þegar hún ávarpaði þing Alþýðusambands Íslands. Hún sagði verkalýðshreyfinguna mun stærri en stjórnmálaflokka, hvað þá einstaka forystumenn.
„Ég veit að þið hér vitið manna best hvað til þarf. Ekki „skyndiupphlaup“ og „hávaðafundi“ – heldur „markvisst, sleitulaust strit“. Úthald til lengri tíma,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í ávarpi sínu á þingi Alþýðusambands Íslands á Hilton hótelinu í dag.
Orðin eru tilvitnun í Jón Baldvinsson, prentara, alþingismann og frumkvöðul íslenskra verkalýðshreyfinga, en hann lést árið 1938. Kristrún lagði mikla áherslu á eininguna og minnti á að sameinuð verkalýðshreyfing væri miklu stærri en stök félög, einn flokkur eða hvað þá einstakir forystumenn í stjórnmálum eða stéttarfélögum.
Svo mælti Kristrún: „Og það segi ég af fullri virðingu fyrir stórum persónuleikum sem takast á innan Alþýðusambandsins – enda ekkert nýtt að það standi styr um menn og málefni í þessari hreyfingu. En það hefur sýnt sig og er margreynt í gegnum 110 ára sögu: Við erum sterkari saman.“
Vísun í átök síðustu daga
Orðin ríma við átök síðustu daga þar sem Sólveig …