Ísraelsher viðurkenndi að hafa gert árás á svæðið og sagði að skotmarkið hefði verið „innviðir hryðjuverkamanna“, án þess að útskýra það nánar. Síðar sagði herinn að hann hefði gert árás á vopnaframleiðslustöð Hamas.
AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Herinn skipaði Palestínumönnum að rýma svæðið eftir fyrstu árásirnar. Um klukkustund síðar voru gerðar harðar loftárásir á sömu járnsmiðju. Sjúkraflutningaþjónusta Rauða hálfmánans í Palestínu sagði að árásirnar í Gasaborg hefðu sært fjórtán manns.
Í dag varð hin níu ára Tala Abu Matar fyrir skoti Ísraelshers í flóttamannabúðum í miðhluta Gasa og lést, að sögn heilbrigðisráðuneytisins. Ísraelsher sagðist ekki hafa vitneskju um slíkt atvik.
Einn Palestínumaður fórst í árás Ísraela á flóttamannatjald í Khan Younis í suðurhluta Gasa, að sögn yfirmanna á Nasser-sjúkrahúsinu, þangað sem líkið var flutt. Ísraelsher gekkst við því að hafa gert árás á því svæði og kallaði hana „hluta af hefðbundnum aðgerðum“. Herinn sagðist ekki hafa vitneskju um mannfall.
Árásum fækkað en áfram daglegt brauð
Árásir Ísraela hafa dregist verulega saman síðan vopnahlé tók gildi þann 10. október en eiga sér stað nær daglega, að sögn AP-fréttaveitunnar. Ísraelsher segir að skotmörk sín tengist Hamas og öðrum vígamönnum og fullyrðir oft að þeir hafi verið að skipuleggja árásir. Árásirnar hafa orðið mörgum almennum borgurum að bana.
Minnst 1.098 Palestínumenn, þar af að minnsta kosti 260 börn, hafa verið drepnir frá því vopnahléið tók gildi, að sögn heilbrigðisráðuneytisins á Gasa. Fimm ísraelskir hermenn eru sagðir hafa fallið á sama tíma.
Heilbrigðisráðuneytið segir að 73.221 Palestínumaður hafi fallið í aðgerðum Ísraela sem hófust sem svar við árás vígamanna á Ísrael undir forystu Hamas þann 7. október 2023. Til samanburðar fórust um 1.200 manns í þeim aðgerðum í Ísrael og voru 251 til viðbótar tekinn í gíslingu.
Heilbrigðisyfirvöld á Gasa eru, líkt og önnur stjórnvöld, leidd af Hamas en stofnanir Sameinuðu þjóðanna og óháðir sérfræðingar telja sjúkraskrár þar almennt vera áreiðanlegar, að því er fram kemur í frétt AP. Ekki er gerður greinarmunur á herafla og almennum borgurum en konur og börn eru sögð um helmingur látinna.
Samningaviðræðum milli Ísraels og Hamas um útfærslu annars áfanga vopnahlésins hefur lítið miðað áfram en hluti af því er afvopnun Hamas og enduruppbygging á Gasa. Flestir íbúar, sem telja yfir tvær milljónir, eru enn á flótta og búa margir í byggingarústum eða yfirfullum tjaldabúðum með litla eða enga grunnþjónustu.