Arndís Halla var sextán ára þegar hún lést, fædd árið 2009. Benjamín var 21 árs, fæddur árið 2005. Þau, ásamt annarri stúlku sem var fædd árið 2007, lentu í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags.
Í gærkvöldi var boðað til kyrrðarstundar á vegum Menntaskólans við Sund í Langholtskirkju vegna slyssins en önnur stúlknanna var nemandi þar. Tvö hundruð ungmenni sóttu kyrrðarstundina.
Minningarstundin í Háteigskirkju hefst klukkan sex á morgun og hefur Helga Soffía Konráðsdóttir sóknarprestur umsjón með athöfninni. Í Lágafellskirkju hefst minningarstundin klukkan hálf sex á morgun, miðvikudag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tildrög slyssins til rannsóknar. Samkvæmt heimildum Vísis voru fleiri bílar á vettvangi og segir lögregla það vera einn þátt sem sé til rannsóknar. Sömuleiðis er til skoðunar hvort að um hraðaakstur hafi verið að ræða.
Fréttin hefur verið uppfærð.