Miklir þurrkar geisa nú á um helmingi landsvæðis í Englandi og Wales eftir langvarandi þurrk á Bretlandi. The Times segir að breska veðurstofan hafi varað við því að hætta á skógareldum sé mikil en stór svæði í suður og mið Englandi og Wales séu orðin mjög þurr.
Hiti mældist víða yfir 35 gráður á miðvikudag þegar fjórða hitabylgja sumarsins gekk yfir. Miklar annir hafa verið hjá slökkviliðum og á síðustu tveimur vikum hafa borist útköll vegna elda á 90 mínútna fresti.
Miklir skógareldar kviknuðu í Dunwich Heath í Suffolk á miðvikudag, aðeins tæpum fimm kílómetrum frá Sizewell B, kjarnorkuverinu. Dunwich Heath er vinsælt útivistar- og göngusvæði og dregur til sín mikinn fjölda ferðamanna árlega. Ferðamenn sem gistu í um 200 hjólhýsum og íbúðum þurftu að yfirgefa gististaði sína vegna eldanna.
Tímabundið vatnsslöngubann
Vatnsyfirborð stöðuvatna, áa og lóna hefur lækkað mikið. Um 80% af ám í Englandi eru með vatnsmagn undir meðallagi og einn sjötti þeirra er með óvenju lítið vatnsmagn miðað við árstíma. Vatnsmagn í geymslulónum hefur fallið niður í 75,3%, sem er um 7,4% undir meðaltali miðað við árstíma.
Sjö vatnsfyrirtæki hafa sett á tímabundið bann við vatnsnotkun í sem hefur áhrif á 23 milljónir viðskiptavina, eða um 40% íbúafjölda Englands. Breska ríkisútvarpið kallar bannið slöngubann, en bannað er að vökva plöntur, þrífa bíla og glugga og fylla vaðlaugar og sundlaugar svo dæmi séu tekin.
Helen Wakeham, forstjóri hjá bresku umhverfisstofnuninni, segir að í heitu og þurru veðri eins og nú hafi náttúran ekki undan til að sinna vatnsþörf manna. „Þurrkar tvö sumur í röð er sérstaklega alvarleg staða sem mun hafa langvarandi áhrif á umhverfi okkar, dýralíf og efnahaginn,“ sagði Wakeman.
Breska veðurstofan segir litla vætu í kortunum. Hættan á skógareldum gæti því átt eftir að aukast enn frekar.