Enn er mikið frost á íslenskum fasteignamarkaði og ekki útlit fyrir að það breytist á næstunni segir hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Markaðurinn sé óneitanlega kaupendum í hag og margar íbúðir seljist á undirverði.
Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, segir fasteignamarkaðinn hafa farið kólnandi allt frá síðasta sumri.
„Á allra síðustu mánuðum sjáum við ennþá meiri merki um kólnun, bæði í því að það eru fleiri íbúðir á sölu og fleiri íbúðir sem eru seldar á undirverði.“
Ekki bara nýbyggingar
Jónas Atli segir það ekki einungis eiga við um nýbyggingar heldur sé markaðurinn rólegri í öllum stærðar- og verðflokkum, þó að breytingin sé áþreifanlegri þegar komi að nýjum og dýrari íbúðum.
Hann telur stýrivaxtahækkanir undanfarinna missera, takmarkað lánaframboð í kjölfar vaxtadóms Hæstaréttar síðasta haust og hægari fólksfjölgun helst skýra minni eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði. Íbúðarverð lækki samhliða því.
Ekki útlit fyrir hlýnandi markað
„Það hækkar allavega mun hægar en verðbólgan og þannig er að eiga sér stað einhvers konar aðlögun. Seljendur eru kannski að lækka verð á íbúðunum sínum af því að þeir átta sig á því að kaupendur eiga ekki efni á jafn dýrum íbúðum og áður.“
Jónas Atli segir ekki útlit fyrir hlýnun á markaði í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í síðustu viku.
„Miðað við könnun sem við gefum út mánaðarlega til fasteignasala þá eru allir sammála um að það séu engar væntingar um að það breytist og allir sammála um að við séum á miklum kaupendamarkaði akkúrat núna.“