Tvær slökkviflugvélar voru kallaðar til Fontainebleau-skógar eftir að skógareldur kviknaði síðdegis í gær og breiddist hratt út. Skógurinn er um 60 kílómetra suðaustur af höfuðborginni París.
Yfirvöld sögðu í nótt að átta ferkílómetrar hefðu brunnið. Ekki var búið að ná tökum á eldinum þegar áhafnir slökkviflugvélanna þurftu að hætta slökkvistörfum við rökkur. Um 400 slökkviliðsmenn hafa unnið að slökkvistörfum.
Eric Brocardi, talsmaður landssambands slökkviliðsmanna í Frakklandi, segir að þetta sé í fyrsta sinn sem slökkviflugvélar hafa verið sendar í héraðið. Þær sinna jafnan slökkvistörfum í þurrari og heitari héruðum í suðurhluta landsins.
Rýma þurfti 15 heimili í þorpinu Vaudoue í grennd skógarins. Ef slökkviflugvélanna hefði ekki notið við hefði þurft að rýma fleiri þorp, að sögn Olivier Compta aðgerðarstjóra.
Skógareldurinn hefur truflað samgöngur í grennd við höfuðborgina. Hluta A6-hraðbrautarinnar var lokað en hún er helsta umferðaræð landsins og tengir saman París og Lyon. Þá urðu miklar seinkanir á lestarferðum frá Gare de Lyon-lestarstöðinni í París.
Frakkar glíma nú við þriðju hitabylgju sumarsins, eins og íbúar fleiri landa í álfunni. Hitamet var sett í Frakklandi 23. júní, dagurinn var sá heitasti frá upphafi mælinga í landinu.
Laurent Nunez, innanríkisráðherra landsins, segir að það sem af er ári hafi 25 þúsund hektarar lands brunnið í Frakklandi, eða 250 ferkílómetrar. Það er tvöfalt meira en allt árið í fyrra.