Slökkviliðið á Akureyri fékk tilkynningu um eld á efstu hæð Alþýðuhússins í Skipagötu 14 laust fyrir hálf 9 í morgun. Eldur hafði kviknað í millivegg hjá veitingahúsinu Strikinu. Starfsmaður varð var við eldinn og náði að ráða niðurlögum hans að mestu og hringja eftir aðstoð.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn opnuðu þeir vegginn og slökktu í restinni af glæðunum þar. Húsið var rýmt á meðan. Aðgerðum á vettvangi var lokið upp úr 9.
Ekki þurfti að reykræsta húsið en Vigfús Ólafur Bjarkason, varðstjóri Slökkviliðsins, sagði í samtali við fréttastofu að skjót viðbrögð starfsmannsins hefðu skipt höfuðmáli.