Grunnskólinn á Þórshöfn tileinkar nokkra daga á vorönn atvinnulífinu í heimabyggð. Nemendur heimsækja þá fyrirtæki og stofnanir í bænum og fá fræðslu um starfsemina. Eftir heimsóknir er svo farið í verkefnavinnu í skólanum í tengslum við starfsemina og fleira.
Þegar nemendur merktu inn á kort af þorpinu hvaða starfsemi og fyrirtæki væru í bænum, þá uppgötvuðu þeir að hér voru ýmis störf sem þeir höfðu ekki áttað sig á að væru til staðar.
Gellur og kinnar
Í Ísfélaginu var vel tekið á móti nemendum á miðstigi sem fengu frábæra leiðsögn um allt frystihúsið hjá Jóhanni verkstjóra og starfsemin var útskýrð. Upp komu ýmis orð tengd fiskvinnslunni sem ekki allir þekktu, svo sem marningur, gellur, kinnar og fleira. Ákveðið var meira að segja að fá gellur og kinnar á næsta skólaári til að matreiða í heimilisfræði og kannski eitthvað fleira.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.

