Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, boðar hert viðurlög í kjölfar árásarinnar á Christopher Street Day, sem tengist hinsegin dögum, í Berlín um helgina. Stjórnvöld verði að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að takmarka ferðafrelsi fólks á borð við manninn sem ók bíl inn í mannfjölda með þeim afleiðingum að ein kona lést og 29 meiddust.
Ef ekki er unnt að úrskurða fólk í gæsluvarðhald verði að gera allt sem réttarríkið heimilar til að takmarka ferðafrelsi þeirra sem teljast hugsanlegir eða raunverulegir brotamenn og ógn við samfélagið.
Ekki sé hægt að svipta neinn þýskum ríkisborgararétti ef það er eina ríkisfang hans, eins og á við um manninn sem grunaður er um árásina.
Merz telur vel mögulegt að svipta tvöfalda ríkisborgara þýskum ríkisborgararétti án þess að breyta stjórnarskrá. Mikilvægast sé þó að tryggja að þeim sem er gert að yfirgefa landið geri það eins fljótt og auðið er. Í þeim hópi séu margir sem taldir séu ógna öryggi samfélagsins.
Spyr hvers vegna maðurinn gekk laus
Merz sagði jafnframt að skýra þyrfti hvernig grunaður árásarmaður gat gengið laus þrátt fyrir að hafa verið undir eftirliti sem ógn við öryggi. Hann velti þeirri spurningu upp hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir árásina og sagðist spyrja í einlægni.
„Og ef lagaramminn fyrir slíkar aðgerðir reynist ófullnægjandi verðum við að ræða hvernig megi breyta lögunum þannig að þær verði mögulegar,“ segir Merz.
„Ég get í öllu falli ekki skilið hvernig ég get rakið farsímann minn hvar sem er í heiminum og jafnvel notað hann til að finna iPad-inn minn en á sama tíma sé því haldið fram að það sé ómögulegt, eða tæknilega óframkvæmanlegt, fyrir þýsk öryggisyfirvöld að vita hvar einstaklingar sem teljast jafn hættulegir og þessir eru staddir hverju sinni. Þetta eru spurningar sem við verðum að fá svör við.“