Í gær var greint frá því að tuttugu og níu stöðugildi verði lögð niður hjá Bláa lóninu og fimmtíu og fimm starfsmenn fluttir á milli sviða. Þá var líka greint frá því að Rapydpay á Íslandi hefði sagt upp um fjörtíu manns vegna skipulagsbreytinga.
Fyrr í mánuðinum gripu forsvarsmenn Berjaya til þess að segja upp öllu starfsfólki á Hilton Reykjavík Nordica og Berjaya Reykavík Natura Hotel eða um þrjú hundruð manns þar sem samningar náðust ekki við Reiti um leigu á hótelunum. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir endanlegar tölur um hópuppsagnir í maí ekki liggja fyrir fyrr en eftir helgi en nokkrar hafi borist.
„Það er í mjög ólíkum geirum, starfsgreinum, þannig að það er svo sem ekki hægt að lesa svo mikið út úr því ennþá að minnsta kosti.“
Unnur segir að meira atvinnuleysi nú en á sama tíma í fyrra. Til að mynda hafi skráð atvinnuleysi mælst 4,6% í apríl en árið áður var það 3,9% á sama tíma.
„Þetta er verra atvinnuástand í ár heldur en í fyrra. Við erum bara að bera saman árin. Það hefur orðið kólnun á vinnumarkaði á þessu ári. Nú erum við vonandi að fara inn í betri tíma yfir sumarið, það hefur alltaf verið þannig, það hefur alltaf verið árstíðabundinn vinnumarkaður á Íslandi.“