Héraðsdómur Reykjaness hefur samþykkt kröfu Icelandair um að vísa meiðyrðamáli foreldra Sólons Guðmundssonar gegn flugfélaginu frá dómi. Þetta staðfestir Sævar Þór Jónsson, lögmaður Guðmundar Þórðarsonar og Rutar Ólafsdóttur, foreldra Sólons.
Sólon svipti sig lífi árið 2024, þremur dögum eftir að hafa látið af störfum hjá Icelandair. Foreldrar hans segja hann hafa verið neyddan til að segja upp í kjölfar ásakana samstarfskvenna sinna. Hann starfaði sem flugmaður hjá flugfélaginu í sex ár.
Málið var þingfest í mars á þessu ári og Icelandair lagði fram kröfu um frávísun skömmu síðar. Foreldrar Sólons fóru fram á að tvenn ummæli Icelandair um Sólon yrðu dæmd dauð og ómerk.
Ummælin snérust um að Sólon væri hættulegur öryggi starfsfólks Icelandair. Foreldrar Sólons sögðu í yfirlýsingu fyrr á árinu að að Icelandair yrði að upplýsa um hvað hafi legið að baki þessu mati félagssins.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir.
Hann lýtur eingöngu að frávísun málsins en dómstóllinn hefur ekki tekið efnislega afstöðu til þeirra ummæla sem krafist er ómerkingar á, að því er fram kemur í skriflegri yfirlýsingu frá Sævari.
„Við munum nú fara yfir forsendur úrskurðarins með umbjóðendum okkar og leggja mat á næstu skref, þar á meðal kæru til Landsréttar eða höfðun nýs máls. Málinu er hvergi lokið af hálfu umbjóðenda minna. Að svo stöddu verða ekki gefnar frekari yfirlýsingar um efni málsins.“