Matvælastofnun varar við tveimur vörum

Matvælastofnun hefur varað neytendur við tveimur vörum sem hafa verið innkallaðar af markaði. Annars vegar er um að ræða pálmasykur sem inniheldur ómerktan ofnæmisvald og hins vegar fæðubótarefni sem inniheldur ólöglegt innihaldsefni.
Fyrri varan er Royal Orient Palm Sugar, sem flutt er inn af Lagsmanni/Fiska.is. Ástæða innköllunarinnar er að varan inniheldur súlfít sem ekki er merkt á umbúðum, auk þess sem magn efnisins er yfir leyfilegum hámarksmörkum. Súlfít getur valdið ofnæmis- og óþolsviðbrögðum hjá viðkvæmum einstaklingum.
Um er að ræða eins kílóa pakkningu með best fyrir dagsetningunni 1. október 2026, sem eingöngu hefur verið seld í verslun Fiska.is að Nýbýlavegi 6 í Kópavogi. Málið kom upp í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið fyrir matvæli og fóður (RASFF).
Jafnframt varar Matvælastofnun við fæðubótarefninu Codeage Liposomal NMN, sem Mamma veit best ehf. flytur inn og selur. Varan inniheldur nikótínamíð mónónúkleótíð (NMN), sem telst ólöglegt nýfæði í fæðubótarefnum.
Innköllunin nær til 30 hylkja pakkninga úr framleiðslulotu 2025-26403, með best fyrir dagsetningunni maí 2028.
Matvælastofnun hvetur neytendur sem hafa keypt aðra hvora vöruna til að neyta þeirra ekki. Eigendur pálmasykursins eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni til Fiska.is, en þeir sem keypt hafa fæðubótarefnið eru hvattir til að hætta notkun þess og skila því eða farga.