Markús Darri Arnoddsson, 23 ára maður á Akureyri, hefur orðið fyrir stöðugum og stigmagnandi ofsóknum af hendi nágranna síns. Mennirnir eru báðir leigjendur í félagslegu húsnæði hjá Akureyrarbæ. Ofsóknirnar náðu hámarki á laugardag þegar Markús þurfti að leita til bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri eftir líkamsárás mannsins. Markús var þá úti á svölum heima hjá sér þegar nágranninn kom þangað og réðst á hann.
Markús þurfti að leita til bráðamóttöku eftir líkamsárás nágranna – „Næstum drepinn fyrir að vera það sem ég er“