Það er margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum sem Hagstofan birti í gær að sögn Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra.
Verðbólga hefur hjaðnað lítillega og stendur í 5,1% en hún mældist 5,2% í síðasta mánuði.
„Það sem drífur verðbólguna áfram núna er þetta ytra sjokk, undirliggjandi verðbólga er enn þá að minnka og við sjáum að þessir liðir sem hafa verið að drífa verðbólguna áfram eru enn þá að gefa eftir, eins og útflutningsliðurinn og matvælaverð. Það er jákvætt,“ segir Daði í samtali við blaðamann mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi.
Lækkun á verðbólguvæntingum
Hann segir að sjá megi töluverða lækkun á verðbólguvæntingum á markaði sem bendi til þess að túlkun ráðuneytisins sé svipuð túlkunum markaðsaðila.
„En við þurfum að halda vel á spöðunum vegna þess að það eru lausir kjarasamningar í haust ef við pössum ekki upp á að halda þessu áfram, verkefnið er mjög aðkallandi,“ segir Daði Már að lokum.