Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.
Árið 2017 var stórt hjá útvarsmanninum Sigvalda Kaldalóns en þá ákvað hann að elta drauminn og flytja til útlanda, eitthvað sem alla dreymir um en allt of fáir láta verða að veruleika.
Útvarpsmaðurinn Sigvaldi Kaldalóns eða Svali eins og hann er kallaður ákvað að selja íbúðina og flytja til Tenerife með fjölskyldu sinni árið 2017. „Við sátum saman í tjaldi í útilegu í sumar og vorum að ræða framtíðina. Í þessu samtali fórum við úr því að ræða hvað væri gaman að fara til útlanda um næstu jól yfir í það hvers vegna við flyttum ekki bara,“ sagði Svali haustið 2017.
Til að byrja með skrifaði Svali reglulega pistla og greindi meðal annars frá því þegar hann fann íbúð fyrir fjölskylduna. Sagði hann leiguverð allt annað á Tenerife en á Íslandi.