Sveitarfélagið Skagafjörður greindi frá mögulegri mengun í Sauðá í Skagafirði á Facebook í dag. Í tilkynningunni segir að mögulega hafi efni komist í ána og að þau berist nú niður með henni.
Talið er að málning hafi með einhverjum hætti borist í ána, þetta segir Svavar Sigurðsson heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands Vestra í samtali við fréttastofu.
„Okkur sýnist þetta vera hefðbundin málning en ekki olíumálning, sem betur fer.“
Hvetur íbúa til að hafa samband geti þeir veitt frekari upplýsingar
Svavar segir þó að ekkert sé vitað fyrir víst og hvetur hann íbúa eindregið til þess að hafa samband hafi þeir einhverjar upplýsingar sem varpi frekara ljósi á málið.
„Ef einhver íbúi hefur lent í því að missa eða hella óvart niður málningu þá vil ég gjarnan vita hversu mikið magn það er svo hægt sé að komast til botns í málinu.“
Regnvatn berst í ána í gegnum niðurföll í bænum og kannaði því heilbrigðiseftirlitið hvort einhver ummerki væru um að málningu hefði verið hellt í niðurföll en svo reyndist ekki vera. Svavar segir mengun í Sauðá ekki hafa verið vandamál hingað til.
Áin rennur í sínum farvegi svo engir gegnumstaumar hafa áhrif, því er mengunin staðbundin og segir Svavar það mögulega góðar fréttir.
Málið litið alvarlegum augum
Í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Skagafirði segir að málið sé litið alvarlegum augum og eru íbúar og aðrir gestir beðnir um að sýna aðgát og forðast snertingu við vatnið.
Fólk sem kann að hafa einhverjar upplýsingar sem varpa frekara ljósi á málið er beðið um að hafa samband við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands.