Málmar i í túrtöppum taldir skaðlausir
„Þó að snefilmagn af málmum sé til staðar í túrtöppum, þá er magnið sem losnar við notkun of lítið til að valda skaða,“ segir matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA. Ný rannsókn sýnir að málmar eru undir leyfilegu hámarki í ellefu tegundum af túrtöppum.
Málmar á borð við blý og arsen teljast nú undir mörkum í túrtöppum og því ekki talið að þau geti valdið skaða. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á vegum matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA. „Þó að snefilmagn af málmum sé til staðar í túrtöppum, þá er magnið sem losnar við notkun of lítið til að valda skaða,“ sagði stofnunin um niðurstöðuna á mánudag.
Í rannsókninni voru ellefu tegundir af túrtöppum, sem seldar eru í Bandaríkjunum, rannsakaðar. Nítján málmtegundir fundust í mismiklum mæli í vörunum en sextán þeirra þóttu vera af mælanlegum styrk. Hins vegar taldist engin þeirra vera yfir leyfilegum mörkum.
Brugðist við fyrri rannsókn
Rannsókn FDA var gerð í kjölfar þess að árið 2024 fundust málmar í sextán tegundum túrtappa frá ólíkum framleiðendum í annarri bandarískri rannsókn. Munur var á því í hversu miklum styrk málmarnir voru eftir tegund túrtappa sem og hvaða málmar mældust. Til dæmis …