Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar en þar segir að töluvert hafi verið um bikblæðingar á umræddum kafla síðasta sumar. Nú verði ráðist í malbikun á honum í því skyni að fyrirbyggja slíkar blæðingar og bæta ástand vegarins.
Meðan á framkvæmdum stendur verði umferðarstýring á svæðinu og hjáleiðir verði sérstaklega merktar. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið, sem er þröngt og fólk við vinnu nálægt umferð.
Um sé að ræða 1,6 kílómetra langan kafla sem nái frá Gljúfurárbrú og um 1 kílómeter fram yfir gatnamót Borgarfjarðarbrautar í norður.
Að öllu jöfnu sé bundna slitlagið á Hringveginum á þessu svæði klæðing. Framkvæmdin við Baulu sé liður í áframhaldandi uppbyggingu og viðhaldi vegarins á þessum hluta Hringvegarins og stefni Vegagerðin að því að malbika fleiri klæðingarkafla Hringvegarins á næstu árum.