Meðalhiti í maí var undir meðallagi þó tíðarfar hafi verið tiltölulega gott. Í samantekt Veðurstofu Íslands um tíðarfar í maí segir að mánðuruinn hafi verið í svalara lagi, þá sérstaklega fyrri hluti hans. Kaldast var inn til landsins á Austurlandi en hlýjast suðvestanlands.
„Það gerði smá hret í lok mánaðar með kulda og snjó austast til á landinu, að öðru leyti var veður að mestu gott.“
Meðalhiti maímánaðar var 6,6 stig í Reykjavík. Það er 0,6 stigum undir meðallagi síðasta áratugar, en 0,1 stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var meðalhiti 6 stig, 1,2 stigum undir meðallagi síðasta áratugar en 0,6 stigum undir meðallagi 1991 til 2020.
Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,2 stig í Húsafelli 31. maí.
Maí var tiltölulega þurr á mestöllu landinu, sérstaklega á landinu vestanverðu þar sem úrkoma var vel undir meðallagi. Í Reykjavík mældist mánaðarúrkoman 28,2 mm sem er 54% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.
Sólskinsstundir voru yfir meðallagi bæði í Reykjavík og á Akureyri.