Björgunarsveitir voru kallaðar til ásamt öðrum viðbragðsaðilum og vegna aðstæðna var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðstoðar við flutning hins slasaða undir læknishendur.
Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri og var kominn þangað upp úr átta í gærkvöldi þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra var um veikindi að ræða. Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.