Venjulegt föstudagskvöld hjá fjölskyldu í Sydney breyttist á örfáum klukkustundum í martröð þegar 12 ára stúlka fékk skyndilega alvarlega heilablæðingu.Skjót viðbrögð móður hennar, sem hóf endurlífgun eftir leiðbeiningum neyðarlínunnar, urðu að sögn lækna til þess að bjarga lífi stúlkunnar. Fjallað er um málið á vefnum News.com.au.Madeleine Goulis, kölluð Maddie, hafði verið við hestaheilsu þegar hún fór að sofa að kvöldi 31. Júlí síðastliðinn. Fjölskyldan hafði átt notalegt föstudagskvöld saman og ekkert gaf til kynna það sem var í vændum.
„Maður hugsar alltaf: „Svona gerist ekki hjá okkur““