Maður var handtekinn í austurhluta höfuðborgarsvæðisins eftir að hann réðst með slökkvitæki að vopni á mann sem sat í bíl sínum.
Árásarmaðurinn notaði slökkvitækið til að brjóta rúður bílsins og kastaði því loks í ökumanninn, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn aðstoðuðu leigusala við að koma leigjanda burt sem hafði í hótunum við hann.
Einnig sinntu lögreglumenn útköllum vegna tónlistarhávaða, þjófnaðar úr fataverslun og innbrots í kaffihús. Tilkynning barst um að gestur veitingahúss í miðborginni gæti ekki greitt reikning sinn og var það mál leyst með vettvangsskýrslu. Einn gisti fangageymslu í morgun.