Óvenjumikið hefur verið að gera í N1 Staðarskála síðustu daga en vaktstjóri á bensínstöðinni segir að landsmenn sem hafi ákveðið að ferðast á milli landshluta um helgina hafi lagt tímalega í hann.
„Það er kannski ekki búið að vera svo mikið í dag en það var mikið í gær og bara síðustu daga, sko, það var óvenjumikil traffík á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag, sérstaklega í gær,“ segir Jóna Gunnarsdóttir vaktstjóri.
Margir höfuðborgarbúar hafa gripið tækifærið og drifið sig austur á land um helgina en þar er spáð allt að 26 gráðum og sól.
Mikið um hestafólk
Er ykkar tilfinning að það séu flestir komnir út úr bænum sem ætli að fara út úr bænum og hafi þegar komið við hjá ykkur í Staðarskála?
„Já, mér finnst eins og fólk hafi lagt tímanlega í hann í gær,“ segir Jóna en bætir við að fólk sé ekki bara á leiðinni í góða veðrið.
Einhverjir haldi nú á fótboltamót í Reykjavík og aðrir séu á leið á Landsmót hestamanna sem stendur nú yfir á Hólum í Hjaltadal. „Ég sé dálítið mikið af hestamönnum á ferðinni,“ segir hún.
Vont ef sendingar komast ekki
Spurð að hverju þurfi að huga í Staðarskála fyrir stórar ferðahelgar segir Jóna að aðalmálið sé að eiga nóg til af öllu.
„Það er mjög vont ef það koma ekki pantanir. Þá er maður pínu illa farinn ef það vantar eitthvað í sendingarnar. Af því að maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni, það þarf allt að gerast um miðja vikuna.“
En hvað er það helst sem fólk er að versla á svona helgum?
„Þeir sem eru á hraðferð grípa náttúrulega samlokur og pylsur. Þeir sem eru ekki eins mikið að flýta sér fara í pizzur og hamborgara,“ segir Jóna.