Nýtt lag tónlistarfólksins UB (Unnar Borgar Ólafsdóttur) og Daníels Dags Hermannssonar, „Barnsfaðir“, hefur vakið mikla athygli síðan það kom út 10. júlí 2026. Þótt lagið hafi náð vinsældum á streymisveitum hefur texti þess slegið feilnótu að mati málvöndunarmanna sem gagnrýna beygingu í viðlaginu.
Margrét Erla Maack og Ingunn Lára Kristjánsdóttir ræddu málið í Vasadiskó á Rás 2.
Lagið, sem gefið er út af plötuútgáfunni Sticky (sem er á vegum Priksins), inniheldur viðlagið: „hristu rassinn fyrir barnsfaðir þinn“. Þessi setning varð kveikjan að umræðu á TikTok.
Dansaðu bitch, da dansaðu bitch, hristu rassinn fyrir barnsfaðir þinn
„Við gefum út bækur, ekki tónlist“
Útgáfan Sticky hefur verið áberandi í íslenskri grasrót og hlaut nýverið hvatningarverðlaun STEFs. Hugmyndafræði útgáfunnar hefur einnig vakið athygli út fyrir landsteinana. Tia Ho, blaðamaður tónlistarsíðunnar Pigeons & Planes, kallaði Sticky „framtíð útópísks tónlistariðnaðar“.
Geoffrey Þór Huntingdon-Williams, stofnandi Sticky, útskýrði nálgunina í samtali við RÚV: „Við gefum út bækur, ekki tónlist. Tónlist sem verður með okkur um ókominn tíma,“ sagði Geoffrey. Útgáfan vinnur eftir „no-master“-stefnu þar sem markmiðið er að allur hagnaður renni til listafólksins sjálfs.
Samkvæmt skráningu í hljóðriti eru höfundar bæði lags og texta þau Unnur Borg Ólafsdóttir, Daníel Dagur Hermannsson, Mio Storaasen Högnason, Davíð Fannar Ragnarsson og Fannar Karl Atlason. Unnur og Daníel eru aðalflytjendur í rappi og söng.
„Dansaðu fyrir hestur“
Elva Björk Ágústsdóttir, sálfræðikennari við MH, vakti athygli á því í myndbandi að titilorðið væri rangt beygt í textanum. Hún benti á að í þessu samhengi ætti orðið að vera í þolfalli, þ.e. „barnsföður“.
„Þetta er eflaust mest miðaldra TikTok sem ég hef nokkurn tímann gert en þetta fer bara svo í taugarnar á mér,“ segir Elva.
„Hvernig á að beygja orðið barnsfaðir? Munið bara prufa að setja hestur. Þú veist bara, dansaðu fyrir hestur? Nei. Dansaðu fyrir hest... Þú segir ekki dansaðu fyrir barnsfaðir þinn. Maður segir dansaðu fyrir barnsföður þinn.“
Hrynjandi tónlistarinnar og skáldaleyfi
Í bókmenntafræði er hugtakið skáldaleyfi vel þekkt, en þar víkja höfundar frá viðteknum reglum um málfar eða form ef það þjónar efninu eða ef rím og hrynjandi krefjast þess.
Bubbi Morthens hefur áður rætt um málfar og tjáningarfrelsi listamanna. Hann telur að fólk sé haldið „málótta“ og að það sé „galið“ hvernig fólk sem talar eða skrifar á sinn eigin hátt tekið sé niður.
Í viðtali á Vísi árið 2020, sem má nálgast hér, hvatti hann listafólk til að vera óhrætt: „Skrifið með hjartanu og við munum skilja ykkur“.
Subway-drottningin
Unnur Borg Ólafsdóttir (UB), annar höfunda lagsins, er enginn nýliði í að vekja athygli á samfélagsmiðlum. Hún er áður þekkt fyrir TikTok-myndbönd sín, þar á meðal 20 daga Subway-áskorun þar sem hún kallaði sig „Subway-drottninguna“.
Auk tónlistarinnar gefur hún út tímaritið UB Exclusive þar sem nektarlist er í forgrunni. Lagið „Barnsfaðir“ hefur þegar fengið yfir 18 þúsund hlustanir á Spotify. Hvort sem málfræðin er rétt eða röng, virðist UB og Daníel Degi hafa tekist að skapa umræðu sem nær út fyrir dansgólfið.