Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segist vera orðin langþreytt á óumbeðnum athugasemdum og ráðleggingum um útlit sitt. Dropinn sem fyllti mælinn virðist hafa verið skilaboð frá lýtalækni sem bauðst til að „laga“ blett á nefi hennar.Frederiksen, sem er 48 ára, greindi frá þessu á Instagram á mánudag. Hún sagðist þá nýkomin heim frá Úkraínu, þar sem hún hafði meðal annars upplifað loftvarnaflautur vegna stríðsins, þegar skilaboðin frá lýtalækninum biðu hennar.
Lýtalæknir bauðst til að „laga“ nefið á Mette – Hún lét hann heyra það