Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Írisi Elvu Hauksdóttur en ekkert er vitað um ferðir hennar síðan um kvöldmatarleytið á sunnudaginn.
Í tilkynningu sem lögreglan birti á Facebook segir:
„Íris er rúmlega 170 cm á hæð, með dökkt hár og ljósar strípur. Hún er með ljósblá augu og sólbrún eftir nýlega sólarlandaferð.
Hún gæti verið klædd í ljósbrúna hnésíða dúnúlpu og er hugsanlega á bifreiðinni UT-X04 sem er ljósbrún Hyundai I30.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Írisar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.“