Á mánudag hófst ótímabundið verkfall háseta og bátsmanna í Sjómannafélagi Íslands (SÍ) sem nær til þriggja skipa Eimskips: Brúarfoss, Dettifoss og Selfoss. Í tilkynningu sem VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa sent frá sér er lýst yfir fullum stuðningi við aðgerðirnar.
„Ljóst er að á undanförnum árum hafa sum stærstu fyrirtæki landsins leitað leiða til að færa störf úr landi í þeim tilgangi að lækka launakostnað og komast hjá þeirri samfélagslegu ábyrgð sem felst í þátttöku á íslenskum vinnumarkaði,“ segir í tilkynningunni.
„Slíkar aðgerðir grafa undan kjörum íslensks launafólks og veikja jafnframt þá sameiginlegu sjóði og þau réttindakerfi sem byggð hafa verið upp í gegnum áratuga starf verkalýðshreyfingarinnar.“
Hvetja til málefnalegra viðræðna
Í tilkynningu VM er lýst yfir áhyggjum af því að störf séu flutt úr landi og sagt að það sé neikvætt fyrir bæði starfsfólk og samfélagið. Er Eimskip hvatt til málefnalegra viðræðna við SÍ um framtíð starfa um borð í skipum félagsins.
Nokkrir fundir hafa verið haldnir hjá ríkissáttasemjara á milli SÍ, Eimskips og Samtaka atvinnulífsins.
Tilkynningin í heild sinni
VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna lýsir yfir fullum stuðningi við aðgerðir háseta í Sjómannafélagi Íslands og þá kröfu þeirra að störf um borð í íslenskum kaupskipum verði áfram unnin af starfsfólki sem nýtur íslenskra kjara og réttinda.
Ljóst er að á undanförnum árum hafa sum stærstu fyrirtæki landsins leitað leiða til að færa störf úr landi í þeim tilgangi að lækka launakostnað og komast hjá þeirri samfélagslegu ábyrgð sem felst í þátttöku á íslenskum vinnumarkaði. Slíkar aðgerðir grafa undan kjörum íslensks launafólks og veikja jafnframt þá sameiginlegu sjóði og þau réttindakerfi sem byggð hafa verið upp í gegnum áratuga starf verkalýðshreyfingarinnar.
Það er grundvallarkrafa stéttarfélaga á Íslandi að fyrirtæki sem starfa hér á landi taki virkan þátt í íslensku samfélagi, virði íslenska kjarasamninga og tryggi að störf séu ekki flutt úr landi eingöngu í þeim tilgangi að auka arðsemi á kostnað starfsfólks og samfélagsins í heild.
VM hvetur Eimskip eindregið til að hverfa frá þeirri vegferð að færa störf háseta frá íslenskum sjómönnum og hefja þegar í stað málefnalegar viðræður við Sjómannafélag Íslands með það að markmiði að ná samkomulagi um framtíð starfa háseta um borð í skipum félagsins.
Samstaða launafólks er forsenda þess að verja kjör, réttindi og störf á íslenskum vinnumarkaði.