Lyfta úr mold úr hinni sögustóru fold - MBL.IS

Lyfta úr mold úr hinni sögustóru fold - MBL.IS

Lyfta úr mold úr hinni sögustóru fold - MBL.IS

„Oddastefnan er að þessu sinni uppskeruhátíð á vissan hátt þar sem farið er yfir afrakstur þeirra fimm ára sem Oddarannsóknin stóð yfir,“ segir Friðrik Erlingsson verkefnastjóri Oddafélagsins, þegar Morgunblaðið spyr hann út í Oddastefnuna sem fram undan er í Gunnarsholti hinn 30. maí og verður helguð Sæmundi fróða.

Oddafélagið hefur haldið Oddastefnu bæði að vori og hausti í fjölmörg ár. Þar hafa komið fram ýmist fræðimenn eða leikmenn og rætt um ýmislegt úr sögu Odda. Aðallega þá um miðaldasöguna og það sem tengist Sæmundi fróða og afkomendum hans. Ríkisstjórnin kom á fót sjóði í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins. Í því fólst að hefja sagnfræði- og fornleifarannsóknir í fimm ár á þeim stöðum þar sem ritstofur voru á miðöldum eins og til dæmis í Odda á Rangárvöllum.

„Hvað Odda varðar þá var það kallað Oddarannsóknin og hefur staðið yfir í fimm ár en lauk á síðasta ári. Annars vegar var það fornleifarannsókn á staðnum og hins vegar rannsókn í sagnfræði og bókmenntum. Kristborg Þórsdóttir stýrði fornleifarannsókninni og þar kom margt mjög merkilegt í ljós,“ segir Friðrik en Kristborg mun fjalla um það á Oddastefnunni.

„Um leið og þau byrjuðu að grafa kom í ljós uppistandandi hellishluti sem er elsta uppistandandi mannvirki á Íslandi sem verið hefur aldursgreint. Hellirinn var grafinn út í Odda um miðja 10. öld. Segja má að þegar höfðingjar voru á Þingvöllum að stofna Alþingi þá hafi verið verkamenn að grafa út þennan helli,“ segir Friðrik og hlær en leggur áherslu á að þessi fornleifafundur sé merkilegur.

Metnaðarfull dagskrá liggur fyrir hjá Oddafélaginu.
Metnaðarfull dagskrá liggur fyrir hjá Oddafélaginu.

Bókaútgáfa síðar á árinu

Varðandi sagnfræðina þá mun Oddarannsóknin skila bókaútgáfu bæði á íslensku og ensku.

„Í haust kemur út bók á íslensku með um 40 greinum fræðimanna sem hafa unnið við Oddarannsóknina. Ekki er einungis um fræðilega úttekt að ræða heldur er bókin fyrst og fremst ætluð almenningi. Þar verða upplýsingar um hvað hefur komið í ljós á hinum ýmsu sviðum í rannsókninni. Einnig verður gefin út bók á ensku, væntanlega á þessu ári, en hún verður fyrst og fremst fræðilega unnin. Helgi Þorláksson fór fyrir sagnfræði- og bókmenntarannsókninni og mun segja frá helstu niðurstöðum hennar á Oddastefnu. Auk þess mun hann segja frá þessari bók sem verður á ensku.“

Friðrik getur þess að dagskráin innihaldi tónlistaratriði hjá sviðslistahópnum Animato. „Við verðum með tvö atriði úr óperunni Sæmundur fróði sem er stórmerkileg enda hefur verkið, sem Þórunn Guðmundsdóttir samdi, fengið afar góð viðbrögð gagnrýnenda og óperugesta. Það er við hæfi að við hossum Sæmundi með því að vera með aríur úr óperu um hann en það var kominn tími til að einhver myndi semja óperu um Sæmund,“ segir Friðrik og sjálfur mun hann segja frá ljósmyndasýningu sem kallast Oddasýning.

„Oddasýning hefur verið í undirbúningi mjög lengi. Sýningin verður svokölluð skiltaborg og verður staðsett í hringlaga lundi fyrir neðan Oddakirkju. Þar verða níu stór skilti með glæsilegum vel unnum ljósmyndum sem sýna uppvöxt Sæmundar fróða og sögu Oddaverja. Myndirnar hafa verið í nokkurn tíma í eftirvinnslu en um sextíu sjálfboðaliðar úr héraði stilltu sér upp á myndunum í miðaldabúningum sem hinar ýmsu persónur úr sögu Oddaverja.“

Sagan verði sýnileg

Sýningin verður sett upp í sumar og Friðrik vitnar í hið kunna skáld Matthías Jochumsson

„Sýningin verður mjög glæsileg og kemur upp síðar í sumar. Verður það hluti af því markmiði Oddafélagsins að gera söguna sýnilega á staðnum. Matthías Jochumsson orti mikið kvæði þar sem hann talar um að lyfta úr mold hinni sögustóru fold. Það erum við að gera. Taka söguna upp úr moldinni og gera hana sýnilega fyrir gesti og gangandi.“

Á einni myndinni má sjá Þórð Kalman Friðriksson í hlutverki …
Á einni myndinni má sjá Þórð Kalman Friðriksson í hlutverki Sæmundar.


Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/05/24/lyfta_ur_mold_ur_hinni_sogustoru_fold/

📰 Aðrar fréttir

Íslenskir vatnslitamálarar í útrás - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 5
Íslenskir vatnslitamálarar í útrás - MBL.IS
„Það er virkilega spennandi að fylgjast með vaxandi útrás íslensks vatnslitafólks á síðustu árum,“ segir Anna Ólafsdóttir Björnsson, en hún ásamt Aðal...
Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? - MBL.IS
Sjálfstæðisflokkurinn er ótvíræður sigurvegari borgarstjórnarkosninganna og er Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, með pálmann í höndunum.Flokkuri...
Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð - MBL.IS
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi sem skipaði baráttusæti á lista Vinstrisins í Reykjavík, grunar að úrslit nýafstaðinna sveitarstjó...
Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 24
Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar - MBL.IS
Menn af erlendu bergi brotnu réðust á starfsmann skoðunarstöðvar þegar í ljós kom að bíll þeirra var ekki í ökuhæfu ástandi. Mönnunum líkaði ekki niðu...
Borgin gaf upp vitlausar lokatölur - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Borgin gaf upp vitlausar lokatölur - MBL.IS
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur fór með rangt mál þegar lesinn var upp heildarfjöldi atkvæða í borginni.Í lesnum tölum var sagt að heildarfjöldi atkvæða væ...
Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 7
Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn - MBL.IS
Hópur ungra manna réðst að eldri manni í miðbæ Reykjavíkur í morgun.Á myndskeiði sem er í dreifingu á samfélagsmiðlum má sjá hvernig mennirnir létu hö...
Enginn mætti frá ríkisstjórninni - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Enginn mætti frá ríkisstjórninni - MBL.IS
Enginn þingmaður úr röðum ríkisstjórnarinnar mætti á málþing um íslenskukennslu og stöðu læsis í grunnskólum, sem Íslensk málnefnd stóð fyrir í samsta...
Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með - MBL.IS
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er ánægð með fylgi flokksins í sveitastjórnarkosningunum. Hún segir ákveðna áskorun fram undan í ...
Beint: Brugðist við kosningunum - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Beint: Brugðist við kosningunum - MBL.IS
Öll atkvæði hafa verið talin eftir sveitarstjórnarkosningarnar sem haldnar voru um land allt í gær, þar sem vendingar urðu nokkrar.Sjá úrslit í stærst...
Blóðugur reikningur á Tenerife - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 4
Blóðugur reikningur á Tenerife - MBL.IS
„Ég greindist með Crohns-sjúkdóm eftir að ég eignaðist barnið mitt í desember 2021 og fór í kjölfarið að fá verki sem ég hélt þá að væru bara eftirkös...
Heppinn spilari 11 milljónum ríkari - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Heppinn spilari 11 milljónum ríkari - MBL.IS
Einn heppinn Lottóspilari var með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins og fékk rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut.Miðinn er í áskrift, að fram ke...
Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot - MBL.IS
Heppinn Íslendingur, sem keypti sér miða í N1 við Austurveg á Selfossi, var meðal þeirra tíu sem deila með sér 2. vinningi í EuroJackpot.Fær hver vinn...
Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 4
Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot - MBL.IS
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir aðspurður hættu á að byggingarfyrirtæki, sem eru með veikari fjárhagsstöðu, fari hreinlega...
Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 3
Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur - MBL.IS
Fimm flugferðum hefur verið aflýst hjá Icelandair í dag, en um er að ræða flug til Frankfurt, Stokkhólms, Berlínar, Portland og New York.Þetta kemur f...
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar - MBL.IS
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa undirritað nýjan málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og þar með myndað áfram...
Afleit reynsla af Skattinum - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Afleit reynsla af Skattinum - MBL.IS
Þrátt fyrir ríka viðleitni og vilja til samstarfs við eftirlitsaðila hefur svo farið að við eftirlit Skattsins með bifreiðaumboðum og bílasölum, að áv...
Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru - MBL.IS
Ryðgað flak gámaflutningaskipsins Víkartinds sem strandaði fyrir nær 30 árum við Háfsfjöru, austan Þjórsáróss á Suðurlandi, skagar nú upp úr flæðarmál...
Óhljóð í nýjum sætum Icelandair - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Óhljóð í nýjum sætum Icelandair - MBL.IS
Bent hefur verið á ákveðin vandamál með sæti í nýjum Airbus-vélum Icelandair og vinnur félagið nú að úrbótum í samstarfi við framleiðanda sætanna. Þet...
„Fólk verður bara lasnara og lasnara“ - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
„Fólk verður bara lasnara og lasnara“ - MBL.IS
„Við vorum átta manns sem smituðumst og allt starfsfólkið var beðið um að fara í blóðprufu,“ segir Atli Dagur Sigurðsson, hjúkrunarfræðingur á bráðamó...
Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður - MBL.IS
Sjö flugferðum Icelandair hefur verið aflýst í dag að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra flugfélagsins. Þar af var fjórum aflýst vegna þess að ekki t...
Endurbæta hengibrúna í Blöndudal - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Endurbæta hengibrúna í Blöndudal - MBL.IS
„Þessar framkvæmdir eru heilmikið föndur sem hefur tekið sinn tíma. Brúin er komin vel til ára sinna, þurfti því viðhald og í svona verkefnum er að mö...
Maðurinn kominn í leitirnar - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Maðurinn kominn í leitirnar - MBL.IS
Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gærkvöld er fundinn.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Jarðskjálftahrina hafin á Reykjaneshrygg - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Jarðskjálftahrina hafin á Reykjaneshrygg - MBL.IS
Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg upp úr klukkan 21 í gærkvöld, tæplega 10 kílómetra vestur af Reykjanestá.Yfir 120 jarðskjálftar hafa mælst sí...
Úrkoma víða en bjart að mestu Austanlands - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Úrkoma víða en bjart að mestu Austanlands - MBL.IS
Í dag má búast við sunnan og suðvestan 5-13 metrum á sekúndu og skúrum en að mestu björtu austanlands.Hiti verður á bilinu 7 til 15 stig, hlýjast á Au...
Annarri ferð aflýst - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 3
Annarri ferð aflýst - MBL.IS
Annarri ferð Icelandair hefur verið aflýst. Samkvæmt vef Isavia hefur flugi félagsins til Stokkhólms verið aflýst en vélin átti að fara í loftið klukk...
Lögregluaðgerð á Laugavegi í morgun - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 3
Lögregluaðgerð á Laugavegi í morgun - MBL.IS
Þónokkra lögreglubíla mátti sjá á Laugavegi við Vegamótastíg í morgun er fjöldi lögreglumanna var þar við aðgerðir.  Vísir greindi fyrst frá.Lögreglan...
150 skjálftar mælst síðan í gærkvöldi - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 5
150 skjálftar mælst síðan í gærkvöldi - MBL.IS
Um 150 jarðskjálftar hafa mælst 8-10 kílómetra suðvestur af Reykjanestá síðan jarðskjálftahrina hófst þar upp úr klukkan 21 í gærkvöldi. Þetta segir s...
Geirfuglinn á lestarstöð í Cincinnati - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Geirfuglinn á lestarstöð í Cincinnati - MBL.IS
Cincinnati-borg í Ohio í Bandaríkjunum er þekkt fyrir allt annað en geirfugla. Þetta kann þó að vera að breytast. Hér hefur fuglinn numið land, í viss...
Sérsveitin og lögreglan við aðgerðir á Kársnesi - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Sérsveitin og lögreglan við aðgerðir á Kársnesi - MBL.IS
Lögreglan getur ekki tjáð sig um lögregluaðgerðir sem fara fram á Kársnesinu um þessar mundir, en sérsveitin hefur verið kölluð út til aðstoðar Lögreg...
„Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
„Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ - MBL.IS
„Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Brugðist var hratt við og var lögreglan með miki...
Myndskeið: Lögreglan leiddi mann út í járnum - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Myndskeið: Lögreglan leiddi mann út í járnum - MBL.IS
Lögreglan leiddi mann í járnum út úr fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi í vesturbæ Kópavogs fyrr í dag, líkt og sést á meðfylgjandi myndskeiði.G...
Stjórnarráðsreitur á dagskrá á ný - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 3
Stjórnarráðsreitur á dagskrá á ný - MBL.IS
Borgaryfirvöld samþykktu nýlega að kynna lýsingu nýs deiliskipulags fyrir svokallaðan Stjórnarráðsreit. Skipulagssvæðið afmarkast af fjórum götum í mi...
Heyrðu skothvell og sáu blóð á hurð
📅 24.05.2026 👁️ 3
Heyrðu skothvell og sáu blóð á hurð
Maður var fluttur á slysadeild með hugsanlega skotáverka og annar var handtekinn í aðgerðum lögreglu á Kársnesi í Kópavogi í og upp úr hádeginu. Þetta...
Prestur gagnrýnir RÚV fyrir „aktívisma“ í umræðu um meirihlutamyndanir
📅 24.05.2026 👁️ 0
Prestur gagnrýnir RÚV fyrir „aktívisma“ í umræðu um meirihlutamyndanir
Fyrrverandi sóknarpresturinn Örn Bárður Jónsson gagnrýnir RÚV harðlega í grein í Morgunblaðinu og sakar ríkisfjölmiðilinn um að fara „í stöðu aktívist...
„Fólk er bara að tala saman“ - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 6
„Fólk er bara að tala saman“ - MBL.IS
Engir formlegir fundir eru á dagskrá oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í dag að sögn Friðjóns R. Friðjónssonar, en hann sér um þessar mundir um...
Meirihlutasamstarf D og A handsalað - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Meirihlutasamstarf D og A handsalað - MBL.IS
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Borgarbyggðarlistans handsöluðu meirihlutasamstarf næsta kjörtímabilið. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síð...
Stórfyrirtæki kaupir dýraspítala - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Stórfyrirtæki kaupir dýraspítala - MBL.IS
Þýska stórfyrirtækið Altano, sem sérhæfir sig í hestalækningum, hefur keypt þrjá dýraspítala á Íslandi. Tveir þessara dýraspítala eru á Norðurlandi, í...
Taka ekki tillit til ósamræmisins - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Taka ekki tillit til ósamræmisins - MBL.IS
Framhaldsskólar landsins taka ekki tillit til ósamræmis í einkunnagjöf milli grunnskóla við innritun nemenda eins og hefur verið haldið fram. Morgunbl...
„Þá ferðu frekar í símann og að skrolla á TikTok“ - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
„Þá ferðu frekar í símann og að skrolla á TikTok“ - MBL.IS
„Við erum með kerfi sem hefur molnað undan í 15, 20, 25 ár og það að einhver bendi á það, þeir eru bara sendiboðar og það er bara gott að menn séu að ...
Fagnar öllum með bros á vör - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Fagnar öllum með bros á vör - MBL.IS
„Ég hlakka mest til að spila golf og hitta allt fólkið,“ segir hinn 16 ára gamli Hilmir Fannar Ómarsson brosandi gegnum Zoom frá heimili sínu í Zug í ...
Þriggja bíla árekstur við Sprengisand - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Þriggja bíla árekstur við Sprengisand - MBL.IS
Þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut við Sprengisand fyrir skömmu, en ekki urðu alvarleg slys á fólki, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á...
Segir alvarlegar rangfærslur og ærumeiðingar í dómnum - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Segir alvarlegar rangfærslur og ærumeiðingar í dómnum - MBL.IS
Tómas Guðbjartsson læknir segir að í rökstuðningi dóms Héraðsdóms Reykjavíkur, sem féll í vikunni, þar sem íslenska ríkið var dæmt bótaskylt gagnvart ...
Takmarka umferð vegna viðhalds - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 1
Takmarka umferð vegna viðhalds - MBL.IS
Áætlað er að hefja viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði (vegnúmer 1) þriðjudaginn 26. maí og að hún standi yfir til 16. júní.F...
Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi - Vísir
📅 24.05.2026 👁️ 1
Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi - Vísir
Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og flugmaður hjá Icelandair, segir ábyrgðina á aflýsingum hjá Icelandair liggja hjá fé...
Hefja formlegar viðræður í Hafnarfirði - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 2
Hefja formlegar viðræður í Hafnarfirði - MBL.IS
Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu ...
Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði af fjölda brauta - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 3
Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði af fjölda brauta - MBL.IS
Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði í dag nemendur við hátíðlega athöfn þar sem fjölskyldur, vinir og starfsfólk skólans kom saman til að fagna áf...
„Í dauðafæri til að klára þetta“ - MBL.IS
📅 24.05.2026 👁️ 3
„Í dauðafæri til að klára þetta“ - MBL.IS
Byggingin sem mun hýsa Náttúruminjasafnið á Seltjarnarnesi er tilbúin, en starfsemi þar getur ekki hafist þar sem safnið bíður eftir fjárheimildum frá...
Atvikið í Kópavogi: Blóð á húsinu – „Þetta er mjög óþægilegt“ - DV
📅 24.05.2026 👁️ 0
Atvikið í Kópavogi: Blóð á húsinu – „Þetta er mjög óþægilegt“ - DV
Lögregla á vettvangi rannsakar nú alvarleg atvik sem átti sér stað í fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi, Kópavogi, í hádeginu í dag. Viðbúnaður ...
Níu­tíu milljóna tjón vegna netglæpa á nokkrum vikum - Vísir
📅 24.05.2026 👁️ 2
Níu­tíu milljóna tjón vegna netglæpa á nokkrum vikum - Vísir
„Frá því gáttin opnaði, þá hafa 34 netbrotamál borist lögreglu og þar af fóru 22 mál í gegnum gáttina og tólf voru skráð með öðrum leiðum,“ segir Agne...
Mynd­skeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi - Vísir
📅 24.05.2026 👁️ 1
Mynd­skeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi - Vísir
Lögregla er enn á vettvangi en myndskeið sem Vísir hefur undir höndum sýnir tvo lögregluþjóna leiða mann í handjárnum niður stigagang og út úr húsinu ...