Frá klukkan 21:00 í kvöld fram til 07:00 í fyrramálið verður hringveginum lokað í norðurátt við Esjumela og Kollafjörð vegna malbikunar Vesturlandsvegar á þessum kafla. Hjáleið verður um Þingvallaveg, Kjósarskarðsveg og Hvalfjarðarveg. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og aka varlega.
Lokun hringvegar við Kollafjörð