Hringveginum verður lokað í norðurátt við Þingvallaveg frá klukkan 21 í kvöld til klukkan 7 í fyrramálið vegna fræsunar og malbikunar við Esjumela og Kollafjörð. Umferðarstýring verður frá klukkan 19 til 21.
Að því er segir í tilkynningu Vegagerðarinnar verður hjáleið um Þingvallaveg (36), Kjósarskarðsveg (48) og Hvalfjarðarveg (47).
Lokunin á aðeins við um þá sem eru að aka til norðurs. Ökumenn á leiðinni suður geta ekið meðfram vinnusvæðinu. Vegfarendur eru þó beðnir um að aka varlega og virða merkingar.
Kaflarnir sem verið er að fræsa og malbika eru annars vegar um 670 m kafli við Esjumela og hins vegar um 1.500 m langur kafli við Kollafjörð.


