Lögreglan á Vesturlandi leitar að tveimur unglingspiltum, Cezary Kobiela sem er 15 ára og Szymon Suchecki 14 ára. Þeir fóru frá heimilum sínum í Borgarnesi á sunnudaginn 13. september. Cezary er 178 sm á hæð, grannvaxinn og með stutt skollitað hár. Hann er klæddur í svarta peysu og svartar buxur.
Szymon er 165 sm á hæð, grannvaxinn og með stutt dökkt hár. Hann er klæddur í svarta peysu, svartar gallabuxur og í svörtum skóm. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir þeirra eftir þann tíma eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.