Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Stúlkan er 160 cm á hæð og með skollitað hár. Síðast er vitað um ferðir hennar við Klettaborg, 600 Akureyri um kl 16:30 í dag.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir stúlkunnar eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.
Greint var frá því fyrr í kvöld að lögregla og allar björgunarsveitir Eyjafjarðarsvæðisins stæðu í umfangsmikilli leit á Akureyri. Lögreglu hafi borist tilkynning um týndan einstakling fyrr í dag og leit hafi þegar staðið yfir í nokkrar klukkustundir um níuleytið í kvöld.
Fréttin hefur verið uppfærð.