Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en einnig barst tilkynning um heimilisofbeldi í Múlum í dag sem leiddi til þess að einn var vistaður í fangageymslu.
Í aðskildu máli var tilkynnt um heimilisófrið í Breiðholti og var einn færður í fangaklefa. Einnig sinnti lögregla tveimur innbrotum í fyrirtæki í Kópavogi og Garðabæ.