Lögmaðurinn Guðrún Björg Birgisdóttir er grunuð um að hafa dregið að sér fé úr dánarbúi, en börn hinnar látnu hafa kært málið til lögreglu. Frá þessu greindi Heimildin í gær og kom í fréttinni fram að Guðrún hafi verið skipuð fjárhaldsmaður hinnar látnu þegar hún var svipt fjárræði. Nokkrum mánuðum síðar lést konan og ákváðu erfingjar að fela Guðrúnu að hafa umsjón með dánarbúinu. Heimildin greinir nú frá því að Guðrún sé ekki aðeins grunuð um fjárdrátt úr dánarbúinu heldur eins um að dregið að sér fé frá einstaklingum sem sviptir höfðu verið fjárræði. Hafi Guðrún verið fjárhaldsmaður þessara aðila sem sviptir höfðu verið fjárræði vegna veikinda eða fötlunar. Guðrún var svipt málflutningsréttindum í byrjun árs og hefur lögmannsstofa hennar, Logia, verið tekin til gjaldþrotaskipta. Heimildin bendir á að Guðrún hafi á árum áður starfað fyrir Marel og Arion banka og eins hefur hún sinnt kennslu við bæði Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, setið í stjórnum félaga, sparisjóða og Lögmannafélagsins og verið varamaður í kærunefnd jafnréttismála.
Lögmaðurinn er einnig grunaður um fjárdrátt frá fjárræðissviptum skjólstæðingum - DV