Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Kvennaathvarfsins, var í dag tilnefnd kona ársins 2025 af Bandalagi kvenna í Reykjavík.
Var Lindu veitt verðlaunin á 109 ára afmæli bandalagsins sem fram fór á Hallveigarstöðum.
Svala Ragnheiðar -Jóhannesardóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, hlaut hvatningarverðlaunin.
mbl.is/Ólafur Árdal
Ekki voru aðeins veitt verðlaun fyrir konu ársins heldur voru einnig veitt hvatningarverðlaun fyrir árið 2025. Hvatningarverðlaunin féllu í skaut Svölu Ragnheiðar- Jóhannesardóttur, formanns Matthildar, samtaka um skaðaminnkun.
Bjartmar Guðlaugsson söngvari mætti í afmælið og tók nokkur lög fyrir afmælisgesti.

