Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ráðið Lilju Björgu Ágústsdóttur í starf sveitarstjóra. Lilja Björg er fædd og uppalin í Dölunum og bjó þar fram að framhaldsskólaaldri.
Greint er frá þessu í tilkynningu frá Dalabyggð.
Lilja Björg er með meistaragráðu í lögfræði og B.Sc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst, auk kennaramenntunar frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig aflað sér réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi.
„Lilja býr yfir víðtækri og fjölbreyttri reynslu af stjórnsýslu og rekstri sveitarfélaga. Hún starfar nú sem sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu hjá Borgarbyggð, þar sem hún ber ábyrgð á framkvæmd stjórnsýslu og fjármála auk þess að gegna hlutverki staðgengils sveitarstjóra. Hún hefur starfað tímabundið sem sveitarstjóri Borgarbyggðar og sinnt fjölbreyttum lögfræðistörfum, bæði sem sérfræðingur hjá Akraneskaupstað og sem lögmaður og meðeigandi lögmannsstofu,“ segir í tilkynningunni.
Lilja á að baki ríka reynslu af stjórnar- og trúnaðarstörfum. Hún hefur meðal annars verið forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar og leitt stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem formaður.
„Sveitarstjórn Dalabyggðar bindur miklar vonir við ráðninguna og telur Lilju hafa þá faglegu þekkingu, reynslu og leiðtogahæfni sem þarf til að leiða sveitarfélagið áfram,“ segir að lokum í tilkynningunni.