„Lífið snýst ekki bara um frí“
Erik Jensen seldi Kaupfélagi Skagfirðinga sláturhúsið sitt í fyrra. Fjölskyldan vann frá morgni til kvölds, sjö daga vikunnar, og því mikil viðbrigði að selja fjölskyldufyrirtækið og vörumerki þess, B. Jensen. „Það er skrítið að sjá ekki nafnið sitt lengur,“ segir Erik.
„Ég veit ekki um neinn sem hefur dáið úr vinnu,“ segir Erik Jensen, fyrrum eigandi B. Jensen, sem er í 40. sæti Hátekjulista Heimildarinnar í ár og er sá þriðji tekjuhæsti á Akureyri.
Kaupfélag Skagfirðinga keypti B. Jensen í fyrra og færði reksturinn inn í dótturfélag sitt, Kjarnafæði-Norðlenska. Með kaupunum eru bæði stórgripasláturhúsin í Eyjafirði komin í hendur Kaupfélagsins.
B. Jensen var fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 1968 af hjónunum Benny Albert Jensen og Jónínu Sigurbjörgu Guðjónsdóttur. Erik, sonur þeirra hjóna, og eiginkona hans, Ingibjörg Stella Bjarnadóttir, ráku fyrirtækið ásamt börnum sínum þar til í fyrra. Reksturinn er við Lónsbakka í Hörgársveit, þar sem hann hefur verið alla tíð, og inniheldur sláturhús, kjötvinnslu og verslun á staðnum.
„Við erum bara að setjast í helgan stein,“ segir Erik, en hann var sjö ára gamall þegar foreldrar hans stofnuðu reksturinn. „Auðvitað er rosa sárt að skilja við svona. En það kemur bara eitt tækifæri …