Yfir 640 þúsund Líbanar sem þurftu að flýja heimili sín vegna stríðsátaka hafa snúið aftur heim á leið, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðafólksflutningastofnuninni (IOM).
Enn er þó ríflega hálf milljón enn á vergangi í Líbanon. Tugir borga og þorpa í suðurhluta landsins urðu fyrir miklu tjóni og eyðileggingu í árásum Ísraela og því margir sem eiga þess ekki kost að fara aftur heim til sín.
Vopnahlé hefur verið í gildi síðan 21. júní. Ísraelsk stjórnvöld ætla að hafa hersveitir áfram í Líbanon á svæði sem nær tíu kílómetra inn í landið, þrátt fyrir vopnahlé.
Ísraelsk og líbönsk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um að stíga skref í átt til varanlegs friðar, meðal annars með afvopnun Hezbollah-samtakanna, brotthvarfi Ísraelshers frá Líbanon og viðveru líbanska hersins í Suður-Líbanon.
Hezbollah-samtökin hafna þessu samkomulagi.
Líbönsk yfirvöld segja að yfir 4.300 manns hafi verið drepnir í átökunum milli Ísraelshers og Hezbollah sem hófust 2. mars. Rúmlega milljón manns þurfti að flýja heimili sín, flestir í suðurhluta Líbanon og í suðurhverfum höfuðborgarinnar Beirút.