Fjórir tvítugir menn frá Íslandi sem voru á ferð um Kirgistan, í Mið-Asíu, ætluðu sér að fljúga frá höfuðborginni Bishkek í morgun, suður til borgarinnar Osh, þar sem þeir ætluðu í fimm daga reiðtúr um fjöllin Pamir-Alaí, sem eru í suðvesturhluta landsins.
Þegar þeir voru komnir upp í vél og henni var ekið út flugbrautina á Manas-flugvellinum í Bishkek tók ævintýri þeirra óvænta stefnu; skyndilega heyrðist hvellur og vélin hallaði á hliðina.
Þeir segja að skelfing hafi gripið um farþegana.
„Það vissi enginn hvað hafði gerst. Vængurinn lá niðri í jörðinni. Og við vorum bara: Hvað er að gerast? Þá fór fólk að panikka inni í vélinni, börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra,“ segir einn ferðalanganna, Konráð Hólmgeirsson, í samtali við fréttastofu.
Burðarhjólabúnaður (e. main gear) vélarinnar gaf sig, samkvæmt umfjöllun kyrgistanskra miðla. Ferðalangarnir segja að þeir hafi litið út um gluggann og séð að vinstri vængurinn lá nánast kylliflatur á flugbrautinni. Hreyfill vélarinnar hafi sömuleiðis dottið af vængnum.
Miðillinn A.K.I. hefur eftir flugvallayfirvöldum í landinu að 181 farþegi hafi verið um borð og að olía hafi lekið úr vélinni, sem er á vegum Tez jet og af gerðinni McDonnel Douglas-83.
Reyna samt að komast á bak
Engan virðist hafa sakað alvarlega en einhverjir hlutu minniháttar áverka.
Strákunum var vitaskuld brugðið en þeir segja að það hafi tekið þá tíma að átta sig á því sem hafði gerst.
Vélin var ekki komin á mikla ferð þegar hjólið gaf sig og því gátu flugmennirnir nauðhemlað strax. Farþegar rýmdu vélina og viðbragðsaðilar mættu á svæðið.
„Slökkviliðið, herinn og allur pakkinn [var] mættur,“ bætir Hákon Hilmir Arnarsson við.
Öllum flugferðum um völlinn var aflýst í dag vegna óhappsins en strákarnir vonast enn til að geta náð hestaferðinni.
„Við erum að reyna að græja innanlandstaxa, sem tekur tólf tíma [að komast til Osh]. Við erum bara að bíða eftir töskunum núna. Það er svolítil spurning hvort við náum í ferðina,“ bætir svo sá þriðji, Kári Brynjólfsson, við.
Mæla gegn innanlandsflugi í Kirgistan
Eruð þið ekkert orðnir smeykir [eftir þetta atvik] við það að þurfa að fara aftur í flugvél eftir viku?
„Jú, jú, jú, jú,“ svarar Konráð og vinur hans, Logi Hrafn Egilsson, skýtur inn í: „Aðeins smeykari við það núna.“
Og Hákon bætir svo við að lokum:
„Allavega innanlandsflug í Kirgistan, við mælum ekki með því.“