Opnunartími Salalaugar verður lengdur á sunnudögum frá og með 19. júlí og fram til 27. september. Laugin verður þá opin til klukkan 22, að því er segir í tilkynningu á vef Kópavogsbæjar.
Um er að ræða tilraunaverkefni bæjarins sem ætlað er að mæta aukinni eftirspurn eftir lengri opnunartíma sundlauga um helgar.
„Við erum að svara ákalli bæjarbúa um að lengja opnunartíma sundlauga um helgar. Við byrjum á annarri sundlauginni þar sem um tilraunaverkefni er að ræða í sumar,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs í tilkynningunni.
Jafnframt er unnið að því að skipuleggja miðnæturopnun í Kópavogslaug í ágúst.
Ásdís segir að reynist verkefnið vel sé stefnt að lengri helgaropnun í báðum sundlaugum bæjarins. Með auknu aðgengi að sundlaugunum sé jafnframt verið að styðja við lýðheilsu bæjarbúa og bæta þjónustu við íbúa.