Lögreglan á Akureyri leitar að 90 ára gamalli konu með heilabilun sem fór út af dvalarheimilinu Hlíð, við Austurbyggð, um klukkan 20:00 í kvöld.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Konan er um 160 sentímetrar á hæð og meðalbyggð, með slétt grátt hár og síðan topp. Hún er talin klædd í hvíta síða lopapeysu með bláu munstri að framan, gráar buxur og mögulega í inniskó.
Þeir sem telja sig hafa séð til ferða konunnar eru vinsamlegast beðnir um að hringja í 112.