Drónum var flogið án leyfis í lofthelginni nærri og yfir alþjóðaflugvellinum í Lúxemborg í kvöld og fram yfir miðnætti og því var ákveðið að stöðva alla flugumferð um stund.
Í tilkynningu á vefsíðu flugvallarins sem birt var eftir að flugumferð var hleypt af stað á ný segir að mikilvægt hefði verið að tryggja öryggi flugvéla, farþega, flugáhafna og starfsfólks á jörðu niðri. Ekkert kemur fram um uppruna flygildanna. Flugvallaryfirvöld segjast fylgjast grannt með framvindu mála og vara við mögulegum töfum og truflunum á flugumferð.