Rússneskar hersveitir beita almenna borgara og stríðsfanga í Úkraínu miklu kynferðislegu. Úkraínuher virðist bera ábyrgð á mun færri slíkum brotum. Þetta segir í nýrri skýrslu Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna.
Gerð er grein fyrir 1.004 staðfestum tilvikum kynferðisofbeldis tengdum stríðsátökunum frá því í febrúar 2022 til júlí á þessu ári. Áréttað er að niðurstöðurnar eru ekki tæmandi í ljósi þess að enn berast mjög fáar tilkynningar um kynferðisofbeldi tengt stríðinu.
Í skýrslunni greina þolendur frá hópnauðgunum, limlestingu og beitingu raflosts á kynfæri. Karlar í varðhaldi, einkum hermenn, urðu fyrir ofbeldi og einnig konur og börn, einkum á herteknum svæðum.
Engin merki um nauðganir rússneskra stríðsfanga
Tæplega helmingur brota á úkraínskum svæðum fólust í hótunum um kynferðislegt ofbeldi gegn rússneskum stríðsföngum og föngum frá þriðja ríki auk barsmíða á kynfærum. Engin merki eru um að Úkraínumenn hafi nauðgað stríðsföngum en stríðsfangar hafa greint frá ofbeldi í tugum úkraínskra fangabúða.
Danielle Bell, yfirmaður mannréttindaeftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu, segir algengan misskilning að kynferðisofbeldi á átakasvæðum bitni helst á konum og stúlkum. Sameinuðu þjóðirnar segja 89 prósent tilvikanna tengd Rússum, þar á meðal hermönnum, starfsmönnum fangelsa og öryggisstofnana.
Afgangur brotanna, um 11 af hundraði, tengist meðal annars úkraínskum hersveitum. Rússar hafa ekki viljað tjá sig um efni skýrslunnar á meðan úkraínska utanríkisráðuneytið kveðst fagna útgáfu hennar án þess að vilja tjá sig beinlínis um meint brot Úkraínumanna.